Ég er að fara til Reykjavíkur um helgina! Vúhú ég fer á krókinn um 3 og næ í pabba þar sem hann er á einhverju kennaraþingi! Og þaðan keyrum við svo til borgarinnar til Valgerðar systir! Þetta verður engin verslunarferð en ætli verði ekki kíkt í smá búðir.. hlakka til að hitta valgó! Hitti hana svo sjaldan..
Um helgina langaði mig svo ægilega út á laugardaginn og ég sat heima og nennti ekki að standa á fætur en druslaðist á fætur um hálf 1 og fór að keyra með Dilja vinkonu sem var í bænum.. svo um 2 fékk ég sms frá Freyju hvort ég væri enn í stuði, og ég bara æji ég er bara að rúnta illa úldin og svona.. En ég fór svo heim og skipti um föt, málaði mig og sléttaði hárið og dreif mig á djammið J það var mjög gaman hjá okkur og ég sko ekki efti r að hafa drullað mér út! J við fórum á pólverjakaffi, kaffi amour og svo í sjallan J gaman allstaðar nema á kaffi amour.. hehe við nenntum ekki að vera þar.. fórum í sjallan frekar að hlusta á Jónsa sem ég held að aldrei þessu vant hélt sér í bolnum, og Kidda killer sem hélt upp á afmælið sitt þarna þetta kvöld og hann var á útopnu upp á sviði syngjandi með vini sínum J við Freyja dönsuðum eins og mófó og gerðum það af okkar alkunnu snilld! Ég er gersamlega taklaus og laglaus en mér finnst samt gaman að dansa og syngja J hehe passar saman NOT
Mamma og pabbi komu frá Riga á sunnudaginn og þeim fannst mjög svo gaman.. þau voru með Villa&Pollý, Heru systir og Gísla Boga manni Petru systir mömmu. Pabbi og Gísli voru saman í herbergi og mamma og Hera saman í herbergi J mamma náði að versla e-ð af jólagjöfum og einhverju handa sér líka, pabbi fékk sér kúrekahatt.. ekki stetson samt en hann fær svoleiðis þegar ég fer til usa næst
Á sunnudaginn eftir að ég var búin að taka á móti mömmu og pabba fór ég í bíó kl 8 á Stardust með Jónasi og Jóni Hilmari, við fórum og horfðum á myndina og ég held við höfum öll hugsað okey hvað kemur næst. þvílíkt öflug hugmyndarflug hjá þessu fólki í Hollywood!! hahaha fín mynd engu að síður
Dabbi og Dídí eru að fara til Madríd helgina þarna 26-28 okt og þau ætla að hafa það nice og örugglega versla smá.. strákarnir verða hér hjá ömmu Hörpu og afa Kristjáni (mamma Dídíar og maðurinn hennar) þau eru að flytja norður og ætla að vera hér þessa helgi til að vinna í húsinu sínu, og strákarnir ætla að vera hjá þeim... ég næ sennilega í þá í skólann á föstudeginum og fer með þá heim og gef þeim að eta og svona þar til Harpa og Kristján koma, svo á laugardeginum næ ég nú í þá og fer með þá í nammileiðangur og fer með þá heim til sín svo þeir geti farið í tölvuna og gert það sem þeir gera um helgar
Ojj mér er svo kalt! Ég er inn í L201 og það er frost hér inni. Ég er með stórar kinnar en samt er ég frosin á kinnunum! Brr... og núna var gellan fyrir framan mig að opna gluggann! Er þetta ekkert grín eða?! vil fá sól og sumaryl 
Ojj mig dreymdi svo illa í nótt!!! Dreymdi helling en það sem ég man er að mig dreymdi þarna gaurinn sem Interpol auglýsti eftir í fréttunum í gær, þarna gaurinn sem er búinn að nauðga einhverjum hundruðum stráka! Mig dreymdi að hann hefði verið hér á ak og hefði falið sig meðal pólverjana hérna! Hann var búinn að ná einhverjum strákum úr Síðuskóla og Glerárskóla, hann lifði s.s sínu sældar nauðgunarllífi hér og hafði það voða gott. Svo fórum við frænkurnar (ég, Kristín og Brynja) á djammið á Kaffi Ak, (pólverja kaffi öðru nafni) og þar sáum við s.s þennan mann og föttuðum samt ekki alveg hvaðan við könnuðumst við hann! Og svo á föstudaginn s.s 26 okt þá fór ég og ná í strákana hans Dabba upp í síðuskóla, og ég sá þennan mann labba framhjá bílnum mínum og ég fór að spá afhverju í fjáranum ég kannaðist svona við hann! Svo fattaði ég hver þetta væri og ég hljóp út úr bílnum og inn í skóla, fann gerpið hvergi og þá kom Daði og bara Dagný ég finn Nóa hvergi, og ég hgusaði hvar í fjáranum hann væri og ég hljóp niður í kjallara í gömlu félagsmiðstöðina og þar var hann að labba með Nóa! Ég hljóp að honum alveg crazy og barði hann, tók Nóa minn í fangið og fór brjáluð með strákana inn á skrifstofu til óla skóla og hellti mér yfir hann að hafa ekki meiri gæslu en þetta í skólanum vitandi að nauðgara í hverfinu! Og þá vaknaði ég! 

Þetta allt saman var ég búin að skrifa 3x en þá datt allt út! Og ég var ekki sátt.. skrifa þetta í Word héðan í frá! Var að hugsa um það þegar ég byrjaði að blogga að það hefði aldrei komið fyrir mig að allt dytti út! En neieni seisei maður á að muna að gera 7-9-13 og knock on wood! En nei Dagný auðvitað gerði það ekki og allt datt út og kom bara á skjáinn Cant connect with Gagnagrunnur! Andsk.... 
En já ég er s.s enn að deyja úr kulda, búin að láta konuna fyrir framan mig loka glugganum áður en ég verð að klaka! Jæja kannski maður fari að hlusta á þennan hræðilega fyrirlestur hjá manninum sem les beint af glærunum, skil ekki afhverju ég mæti í þessa tíma... vita tilgangslaust sko! 
munið bara krakkar mínir að "No star can shine with a broken heart" þetta lærðum við svo skemmtilega í bíóinu á sunnudaginn
jæja over and out... eins og Jón segir EN nóg um mig